- FRÍ SENDING YFIR 15.000 KR
- GRUNN NÁMSKEIÐ HEFST Í APRÍL
- VIÐ ERUM HÉR FYRIR ÞIG!
- FRÍ SENDING YFIR 15.000 KR
-SKRÁNING Á VORÖNN 2027 HAFIN
- VIÐ ERUM HÉR FYRIR ÞIG!

Naglaskólinn

Grunnnámið og vörupakkar

GRUNNNÁMSKEIÐ

Hafnarfjörður 2027

Kvöldnámskeið Vorönn 2027

Fjórar vikur - Tvö kvöld í viku
10. og 11. feb
17. og 18. feb
24. og 25. feb
3. og 4. mars

Innifalið í vörupakka :

GRUNNNÁMSKEIĐ

Hafnarfjörður 2027

Helgarnámskeið vor 2027
Helgi 1: 9. - 11. april
Helgi 2: 23. - 25. april
Helgi 3: 8. og 9. maí

Innifalið í vörupakka:

Gullpakkinn

495.000 kr

Silfurpakkinn

419.976kr

Bronspakkinn

379.984 kr

HVERNIG ER GRUNNNÁMIÐ HJÁ MAGNETIC?

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna. 

KVÖLDNÁMSKEIÐ:

Þegar við erum með kvöldnámskeið en þá mæta nemendur 2 x í viku miðvikudag og fimmtudag frá kl: 17:00-21:00. Unnið er eftir kennsluáætlun og er námið ansi fjölbreitt. Unnið er á eigin hendi, á gervi hendi og á módel. Á milli kennslustunda fá nemendur heimanám sem ætlast er til að nemendur klári fyrir næstu kennslustund. Gott er að nemendur taki sem flest módel því að æfingin skapar víst meistarann.
Kennari: Lísa Gunn.

HELGARNÁMSKEIÐ Í HAFNARFIRÐI:

Þegar við erum með helgarnámskeið mæta nemendur þrjár helgar. Ein fríhelgi er á milli vinnuhelga, þannig að nemendur fá góðan tíma til að æfa aðferðir á milli námskeiðs helganna.

Föstudagur: 17:00 - 21:00
Laugardagur: 10:00 - 17:00
Sunnudagur : 10:00 - 13:00


Á milli kennslustunda fá nemendur heimanám sem ætlast er til að nemendur klári fyrir næstu kennslustund. Gott er að nemendur taki sem flest módel því að æfingin skapar víst meistarann.
Kennari: Lísa Gunn.

VERKEFNASKIL

Á meðan náminu stendur eru unnin verkleg verkefni í kennslustundum sem þarf að klára. Nái nemandinn ekki að ljúka verkefninu í kennslustundinni þarf hann að ljúka því heima fyrir næstu kennslustund. Í fyrstu kennslustund er farið yfir bóklega hluta námsins, en það er mjög mikilvægur þáttur námsins. Bóklegt verkefni er síðan unnið seinni hluta námsins heima, en það er unnið rafrænt og hafa nemendur 48 klst til að skila inn verkefninu. Bóklega verkefninu ber ekki að kvíða því að spurningarnar eru mjög sanngjarnar og gerðar til þess að hjálpa nemendum að öðlast skilning á faginu og gera hann þar með að betri fagmanni.

Verklegt lokapróf er svo tekið í samráði við kennara þegar nemandinn hefur náð þeirri færni sem þarf til að ljúka prófinu, en á æfinga tímabilinu fer hver nemandi á síðum hraða þegar.

Algengast er að nemandi ljúki verklegu verkefni innan þriggja mánaða, en eins og áður segir fer hver á sínum hraða. Verklega verkefnið er tekið í fjölbreyttri tækni á gervihendi.

VÖRUPAKKAR

Við bjóðum upp á þrjá mismunandi tegundir að vörupökkum.

Gullpakinn: 495.000 kr
Silfurpakkinn: 419.976 kr

Bronsoakkinn: 379.984 kr 

Pakkarnir eru hannaðir út frá þessu: viltu gera þetta sem hobbí ? viltu gera þetta sem hlutastarf? eða viltu gera þetta að fullu starfi? Út frá þessu getur þú svo valið hvað hentar þér best.
Grunnurinn í öllum pökkunum er sá sami aðal munurinn eru raftækin og fjölgar þeim eftir hvað pakkinn stækkar. Aukalega í gullpakkanum er svo veglegt vinnuljós, 12 auka gellitir, porfessional pensla box, og ryksuga. Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um vörupakkana ekki hika við að senda okkur línu. Einnig eru myndir hér að ofan af vörupökkunum.

GREIÐSLUFERLI

Verðið á skólanum er miðað við staðgreiðslu.

Hvernig fer greiðsla fram?
Er hægt að skipta greiðslum?
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðsluleiðir:

* Borgun/SaltPay/Teya – kortalán allt að 36 mán
* PEI – kortalaust lán allt að 36 mán
* Netgíró – kortalaust lán allt að 24 mán

Einnig er hægt að fá greiðslukvittun fyrir stéttarfélag hvers nemanda og fá hluta endurgreiddann.

UM OKKUR

Við erum viðurkennt merki með viðurkennd efni sem eru þekkt fyrir gæði.
Efnin okkar koma frá Hollandi frá höfuðstöðvum Magnetic Nail Design.
Kennarar sem eru með áralanga reynslu af kennslu í nöglum

Magnetic er eitt stæðsta nagla-fyrirtæki heims og er í yfir 45 löndum í heiminum
Kröfurnar sem eigendur Magnetic Nail Design setja á kennarana sína eru miklar og því þurfa kennarar Magnetic að fara út reglulega til þess að afla sér nýrra réttina og endurmennta sig í faginu að standast allar kröfur og pressu sem endurspeglar góða, þolinmóða og flotta kennara.

Magnetic er með einn spreng lærðan kennara sem brennir fyrir því að senda frá sér flotta og örugga nemendur.
Lísa Gunn - Magnetic Expert Trainer

AF HVERJU ÞARF MAÐUR AÐ LÆRA NEGLUR EF ÉG GET PANTAÐ EFNI Á NETINU?

Ástæðan fyrir því afhverju það er svo mikilvægt að þú farir í viðurkenndan skóla (ef þú hefur áhuga á naglafræði)
er sú að það er svo auðvelt að gera varanlegan skaða í neglurnar.

Efni sem þú getur pantað á netinu eins og t.d. AliExpress eru efni sem eru ekki viðurkennd og því geta valdið alvarlegum skaða og/eða ofnæmi.
Hversu mörg keratínlög eru í nögl að meðaltali ?
Hvað þarf að fjarlægja mörg keratínlög ?
Hvað gerist ef þú tekur of mörg keratínlög ?
Farið er í anatomyu naglarinnar og alla helstu naglasjúkdóma.
Þetta er svo mikilvægt að vita og vera meðvitaður um þegar maður byrjar að gera neglur.

HVAÐ ÞARF AÐ HAFA Í HUGA?

Það er mjög mikilvægt að afla sér upplýsinga um alla naglaskóla Íslands
og sjá hvaða skóli hentar hverjum og einum.
Það sem þarf að hafa í huga þegar kemur að því að velja sér naglaskóla er svo margt m.a:
Er skólinn með starfsleyfi ?
Hvernig eru vörur pakkarnir ?
Eru kennararnir með kennsluréttindi á efnin sem skólinn kennir á ?
Hvernig er aðstaðan ?
Hvernig er kennsluáætlunin ?
Er skólinn með viðurkennd efni frá viðurkenndu merki ?
Hvernig er námsefnið ?

Það er svo mikilvægt að velja vel og vandlega – og því hvetjum við ykkur öll um að skoða allt sem er í boði.

AÐSTAÐAN OKKAR

Aðstaðan okkar er þægileg og rúmgóð. Það komast 12 nemendur að hverju sinni og með hverjum hóp fylgja 2 kennarar.
Gott pláss fyrir nagla aðstöðu og rúmgott vinnupláss. Í skólanum hjá okkur er frábært aðgengi fyrir alla.
Við erum með sjónvarp og kennsluborð í skólastofunni okkar og þegar það er sýnikennsla er henni varpað upp á skjáinn svo allir sjái jafn vel.
Hægt er að hækka og lækka stólanna í kennslustofunni og því ættir þú alltaf að geta unnið í góðri vinnustellingu.

Það er aðgengilegt salerni fyrir nemendur, vaskur sem er bæði inn á salerni og frammi í kennslustofunni
Skólinn skaffar rykgrímur og hanska fyrir nemendur.
Ryksugur eru á öllum skólaborðunum ásamt vinnuljósum.

SÆKJA UM SKÓLA


Scroll to Top